Útvarp
FM-útvarpið þarf annað loftnet en það sem er í þráðlausa tækinu. Samhæft höfuðtól eða
aukabúnaður þarf að vera tengdur tækinu ef FM-útvarpið á að virka rétt.
Veldu
Valmynd
>
Útvarp
eða haltu inni * til að opna útvarpið.
Veldu úr eftirfarandi:
Slökkva — Loka útvarpinu
Vista stöð — Vista virka stöð.
Sjálfvirk leit — Stilla útvarpsstöðvar sjálfkrafa. Flettu upp eða niður til að hefja
sjálfvirka stillingu.
Handvirk leit — Stilla útvarpsstöðvar sjálfkrafa. Flettu upp eða niður til að breyta
tíðninni.
Stilla tíðni — Slá inn tiltekna tíðni.
Eyða stöð — Eyða stöð.
Endurnefna — Endurnefna vistaða stöð.
Útvarpsklukka — Stjórna valkostum útvarpsins.
Hátalari eða Höfuðtól — Hlusta á útvarpið í hátölurum eða höfuðtóli.
Flettu til vinstri eða hægri til að stilla hljóðstyrk útvarpsins.
Viðvörun:
Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Hlusta skal á tónlist á hóflegum
hljóðstyrk og ekki halda tækinu nærri eyranu þegar kveikt er á hátölurunum.